Nú er rétti tíminn til að huga að jólagjöfum til dæmis, eða jólaundirbúningi heimilis...við höfum nú stóraukið úrval okkar í skartgripagerðina og einnig að sjálfsögðu í garnúrvali...það er svo margt hægt að búa til fallegt...hér eru nokkrar hugmyndir:
Pottaleppar, dúkar, ljósaseríur, skartgripi, húfur og vettlinga, sjöl og peysur, legghlífar (vinsælar) , töskur, trefla, þvottapoka, langan vettling með gati fyrir snjósköfuna...púða...teppi...heklaða kertastjaka fyrir sprittkerti..