Prjónað - í dagsins önn
/garn í bókinni/
Hún er komin út ! Þessi bók er snilld að mínu mati. Kemur mér í gott og rómantískt skap.
Uppskriftirnar eru bæði smart og koma hugmyndafluginu af stað. Í þessari bók er eitthvað
fyrir alla, konur sem karla á öllum aldri.
Hönnunin á bókinni er afar falleg og langar manni að takast á við öll verkefnin í henni.
Nýstárleg hönnun og munstur sem maður bara verður að prófa !
Það skemmir ekki fyrir að velja er hægt úr smáum og stórum verkefnum.
Spennandi bók sem ég get skoðað aftur og aftur.
Njótið vel ;)
Anna
Frír sendingarkostnaður !